Jun 20, 2024
Góðan daginn þennan fallega afmælisfimmtudaginn!
þátturinn í dag er jafn hræðilegur og venjulega og það er í raun
eins og við höfum tekið þetta mál fyrir áður. Staðreyndin er
hinsvegar sú að þetta er bara alltof algengt og við höfum heyrt
svona sögur alltof oft, því miður.
Í dag segjum við sögu sálfræðinemanda. Hún tekur síðasta próf
námsins, neglir það, fagnar, og síðan ekki söguna meir.
Algjör og innileg hörmung.
Þáttur dagsins er í boði Sleepy, Ristorante, Happy Hydrate og Nettó.
Mál hefst: 8:20
Þolandi: Hannah Wilson, gerandi: Daniel Messel